|
|
|
|
Horse Export Gunnar Arnarson ehf.
|
|
|
|
|
|
|
Breeding ranch at Auðsholtshjáleiga, Gunnar Arnarson & Kristbjörg Eyvindsdóttir
|
|
|
Þórdís Erla og Lilja frá Dalbæ náðu frábærum tíma í 150 metra skeiði á Hellu um daginn. Þær stöllur runnu skeiðið á 14.83 og náðu öðru sæti. Góður árangur sérstaklega þar sem þær eru nýbyrjaðar að keppa í þessari grein.
Mynd: Þórdís Erla og Tíbrá frá Auðsholtshjáleigu. /Krissa
|
|
Einhverra hluta vegna er gripin um sig mikil skeiðvakning. Sennilega er það völlurinn á Grænhól sem tekinn var í notkunn í vetur sem veldur þessu. En það skilar sér árangur í skeiðgreinum og A-flokk stórbatnar :o) Krakkarnir fóru með 3 hross í gæðingaskeið á Hellu og viti menn. Þórdis Erla náði I. sæti í opnum flokk á Lilju frá Dalbæ, í öðru sæti var Bylgja á Trostan frá Auðsholtshjáleigu og í 4. sæti Eyvindur Hrannar á Ársól frá Bakkakoti. Frábær árangur.
|
|
Þórdís Erla skilaði tveimur hryssum inn í úrslit í B-flokki. Það voru þær Þöll frá Garðabæ og Frægð frá Auðsholtshjáleigu. Sigursteinn Sumarliðason endurtók leikinn frá því í fyrra, sigraði tvöfalt, ótrúlegt afrek. B-flokkinn vann hann á Ölfu frá Blesastöðum. Þórdís reið Þöll í úrslitum en Gunnar sýndi Frægð.
|
|
Það var góð uppskera á Gæðingamóti Sleipnis. A-Flokk sigraði Sigursteinn Sumarliðason á Álm frá Skjálg, áttu þeir félagar frábæra sýningu. Í öðru sæti hafnaði Þórdís Erla á Tíbrá frá Auðsholtshjáleigu (undan Gára og Trú), Bylgja Gauks náði þriðja sæti á Trostan frá Auðsholtshjáleigu (undan Orra og Tign). Í fjórða sæti varð síðan Lektor frá Ytra-Dalsgerði (undan Gára og Gígju). Frábær hross og knapar og magnaðar sýningar. Eftir verðlaunaafhendingu tóku knapar öll hrossin til kostanna og skeiðuðu þau hvert öðru betur, eftirminnileg stund Því miður var orðið skuggsýnt og ljósmyndir sem ég tók af þessum magnaða spretti eru líkari kvikmynd.
|
|
Read more...
|
|
Þeir feðgar Gunnar og Hrannar hafa löngum haft mikinn áhuga á skeiði. Þegar skeið berst á tal upphefst ætíð nokkur metingur hvor sé á fljótari hesti og geti náð betri árangri. Það var hægt að sannreyna á Gæðingamóti Sleipnis. 100 metra skeið Hrannar mætti til leiks á Lilju frá Dalbæ og Gunnar á Ársól frá Bakkakoti. Lagt var undir og nú skyldi tekið á því, "eggið vann hænuna" Hrannar og Lilja náðu betri tíma, sekúndubrot skildi þá að. Gunnar á harma að hefna.
|
|
|
Útflutningur hefst á ný eftir hlé um miðjan September. Í fyrstu er nauðsynlegt að gera ráðstafanir til þess að tryggja að kvefuð hross fari ekki úr landi. MAST hefur gefið út reglur hvað þetta varðar og verður farið fram á að hross séu í "heimasóttkví" 30 daga fyrir brottför. Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu MAST, slóðin er: http://www.mast.is/eydublod/bufe nauðsynlegt er að koma þeim hrossum sem fara eiga út í September sem fyrst í þetta ferli.
Export of horses will start after middle of September, the first flights will be to Liege in Belgium. Because of the cold that started in Iceland at spring there will be some roules about the export and the horses has to be in „homequarantine“ 30 days before export. Many of the horses are fresch again now, but still are some horses that got the cold very late (in June and July) who are not over it yet so this is done to be sure that the horses who are exported are fresch. More info about the „homequarantine“ can you reach at : http://www.mast.is/eydublod/bufe Info about the cold in English you can reach at: http://www.mast.is/index.aspx?GroupId=1448&tabid=1458 Some new info about the export will be at www.mast.is soon.
|
|
|
Þetta var mótið þar sem Þórdís Erla var ansi seig að ná þriðja sætinu. Í B-flokki gæðinga sýndi hún hryssuna Þöll frá Garðabæ, það var körftug sýning og eftir harða baráttu við sterk hross höfnuðu þær stöllur í þriðja sæti. (það sama var uppá teningnum í Tölti of A-flokk).
|
|
Read more...
|
|
Þáttaka okkar á kynbótasýningu og gæðingamóti á Hellu gekk mjög vel. 4 kynbótahross (af 6) unnu til verðlauna. "Stelpurnar okkar" voru í verðlaunasætum í Tölti, B-flokk og A-flokk. Í A-flokk fóru þær með 3 hross og komust þau öll í úrslit. Þórdís Erla og Tíbrá frá Auðsholtshjáleigu höfnuðu í 3. sæti Bylgja og Trostan frá Auðsholtshjáleigu í því 5. Að sjálfsögðu heimtuðu þær myndatöku að úrslitum loknum.
|
|
| << Start < Prev 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Next > End >>
|
|
|
| |
Gunnar Arnarson ehf. -
Lækjarvað1, 110 Reykjavík, Ísland - Sími: 557 3788 -
This email address is being protected from spam bots, you need Javascript enabled to view it
|
|